ONE CORE

One Core er hugmyndafræði og samstarf Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar (Samhæfing líkamans) og Stefáns Más Autrey (Þjálfun og heilsa), en báðir eru þeir starfandi sem meðhöndlarar.

One Core má lauslega þýða sem “Einn Kjarni” en hugmyndafræðin byggist á því að veita þér og þínum ráðgjöf við uppbyggingu þíns kjarna með meðhöndlun, ráðgjöf og eftirfylgni, eftir þörfum hvers og eins.

Hver og einn hefur aðeins einn kjarna og áður en einhver önnur líkamsrækt hefst er rétt að hafa undirstöðurnar í lagi. Ef undirstaðan er ekki í lagi er ekki hægt að byggja neitt ofaná. Ef sársauki finnst í mjöðmum, baki, mjóbaki eða öxlum er oftast hægt að finna orsök í kjarnanum fyrir skekkju eða tognun. Okkar sérhæfing er í að finna þessa skekkju og laga hana. Verki í mjóbaki hjá stórum hluta þjóðarinnar eða grindargliðnun hjá ófrískum konum hefur oft verið svarað sem ólæknandi “sjúkdómum” er það sem við sérhæfum okkur í að laga. Og það með góðum árangri.

215 queries. 0.399 seconds