Um okkur

Jóhannes

Jóhannes

Jóhannes T. Sveinbjörnsson lærði í Naturmedicinsk Kursusenter í Danmörku árin 2001 til 2003. Þaðan fór hann til Spánar þar sem hann nam í fjarnámi vöðva- og liðjöfnun hjá Eric Dalton en hann stofnaði og rekur Freedom from Pain institute í Bandaríkjunum.

Jóhannes hefur náð góðum árangri í meðhöndlun á grindargliðnun, mjóbaksverkjum, bakverkjum og almennt í uppbyggingu og samhæfingu líkamans.

Hægt er að panta tíma hjá Jóhannesi í gegnum tölvupóstinn joi@onecore.is eða í síma 822-9606.

Stefán

Stefán Már Autrey lærði höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð hjá Upledger Institute á Íslandi og sækir þangað reglulega námskeið. Stefán stundar nú einkaþjálfaranám við Íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ en ÍAK einkaþjálfaranámið er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er mjög sérhæft nám þar sem kennd er einstaklingsbundin þjálfun.

214 queries. 0.278 seconds